Gjaldskrá
Gjaldskrá Lögmanna Suðurlandi ehf.
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA – FASTEIGNASALA – INNHEIMTA
Gjaldskrá þessi tekur gildi þann 1. júlí 2025
GJALDSKRÁ LÖGMANNA SUÐURLANDI, FASTEIGNASÖLU LÖGMANNA SUÐURLANDI OG SJÓÐS INNHEIMTA
1.0 ALMENNT UM ÞÓKNUN
1.1
Gjaldskrá þessi gildir fyrir Lögmenn Suðurlandi ehf., Fasteignasölu Lögmanna Suðurlandi og Sjóð innheimtur nema um annað hafi verið samið.
1.2.
Ákvörðun þóknunar mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er að eða þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi. Eðli verks eða samningur lögmanns og viðskiptavinar ræður því hvor aðferðin er notuð. Sé samið um hagsmunatengda þóknun er útfærsla hennar háð samningi við viðskiptavin hverju sinni.
Sé samið um hagsmunatengda þóknun sem reynist lægri en þóknun samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
Afhenda skal viðskiptavini sundurliðaðan reikning yfir verkkostnað í hverju máli. Þegar þóknun er ákvörðuð á grundvelli tímagjalds skulu upplýsingar veittar úr tímaskýrslu ef eftir þeim er leitað.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslu þóknunar. Málskostnaður sem dæmdur er í máli, fellur til málsaðila og hefur ákvörðun dómsins um fjárhæð málskostnaðar ekki áhrif á útreikning málflutningsþóknunar samkvæmt grein 2.0.
1.3
Allar þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts sem er 24%.
1.4
Samkvæmt 24. gr. laga nr. 77/1998, um lögmenn, er lögmanni rétt að áskilja sér hæfilegt endurgjald fyrir störf sín, þar á meðal getur lögmaður áskilið sér hluta af þeirri fjárhæð sem umbjóðandi fær greitt í máli, svo og hærra endurgjald ef mál vinnst en ef það tapast. Loforð um ósanngjarnt endurgjald fyrir starf lögmanns bindur ekki umbjóðanda hans.
Ef lögmann greinir á við umbjóðanda sinn um rétt til endurgjalds fyrir störf sín eða fjárhæð þess getur annar þeirra eða þeir báðir lagt málið fyrir úrskurðarnefnd lögmanna.
1.5
Samkvæmt siðareglum Lögmannafélags Íslands ber lögmanni að gera viðskiptavinum sínum eftir föngum grein fyrir áætluðum málskostnaði, þ.e. þóknun og útlögðum kostnaði.
Megi ætla að kostnaðurinn verði hár í hlutfalli við þá hagsmuni sem eru í húfi, skal vekja á því sérstaka athygli.
Vísað er til 2. kafla siðareglna Lögmannafélagsins Íslands sem nálgast má á heimasíðu félagsins lmfi.is.
2.0 TÍMAGJALD
2.1
Tímagjald er frá kr. 38.200,- til kr. 49.000,-. Ákvörðun um fjárhæð gjaldsins innan þeirra marka fer eftir þeim hagsmunum sem verki eru tengdir, ábyrgð lögmannsins, starfsreynslu hans og sérþekkingar, verkhraða og niðurstöðu máls.
Fjórðungur úr klukkustund gjaldfærist fyrir hverjar byrjaðar 15 mínútur.
3.0 MÓT
3.1
Þóknun fyrir mót í máli sem tekið er fyrir hjá dómstólum, sýslumanni eða öðru stjórnvaldi er kr. 16.500,-.
Þóknun fyrir mót við lokasölu er tvöföld framangreind fjárhæð.
Fari meiri tími til verksins, með ferðum, en 30 mínútur, skulu fyrrgreindar fjárhæðir reiknast fyrir hverjar byrjaðar 30 mínútur.
3.2
Þrátt fyrir ákvæði í grein 4.1 er lögmanni heimilt fyrir fyrsta mót í hverju máli hjá sýslumanni að taka sérstaka viðbótarþóknun miðað við samanlagða kröfufjárhæð höfuðstóls og vaxta:
36.500,- af kröfum allt að fjárhæð kr. 675.000,-
kr. 43.000,- af kröfum að fjárhæð kr. 675.000,- til 1.350.000,-
kr. 48.500,- af kröfum að fjárhæð yfir kr. 1.350.000,-.
Fyrir mót í málum, þar sem örðugt er að meta hagsmuni til fjár, má við ákvörðun þóknunar taka tillit til mikilvægis máls, umfangs þess og þess tíma sem mál tekur.
4.0 INNHEIMTUR
4.1
Grunngjald innheimtuþóknunar er kr. 9.000,-
Við grunngjaldið bætist, af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta:
25% af fyrstu kr. 90.000,- innheimtufjárhæðar og
15% af næstu kr. 180.000,- innheimtufjárhæðar og
10% af næstu kr. 550.000,- innheimtufjárhæðar og
5% af næstu kr. 5.260.000,- innheimtufjárhæðar og
3% af því sem umfram er.
Þegar stofnun kröfu hefur í för með sér aukna vinnu eða kostnað vegna eðlis kröfunnar, s.s. á við um lögveðsköfur þegar kanna þarf þinglýstan eiganda og hvort eign sé á uppboði, eða annað þess háttar, er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Gjaldið fer eftir umfangi þessarar viðbótarvinnu.
4.2
Heimilt er að veita 25% afslátt af þóknun samkvæmt grein 3.1 ef skuld er greidd innan 10 daga frá dagsetningu innheimtubréfs.
4.3
Kröfuhafi ber, gagnvart lögmanni ábyrgð á greiðslu þóknunar og öllum útlögðum kostnaði ásamt vöxtum.
4.4
Þóknun er kr. 15.500,- fyrir ritun greiðsluáskorunar, beiðnar um aðför, nauðungarsölu og vörslusviptingu, kröfulýsingar, kröfu um gjaldþrotaskipti og afturköllun.
Þóknun er kr. 25.500,- fyrir ritun stefnu.
Þóknun fyrir frestun aðfarar eða nauðungarsölu er kr. 4.000.-
4.5
Skuldari getur óskað eftir því að gera greiðslusamning þannig að kröfur verði stofnaðar í banka um hver mánaðarmót. Vegna hverrar kröfu sem stofnuð er í banka í samræmi við greiðslusamning greiðir skuldari allt að kr. 600.- í þjónustu- og umsýslugjald.
5.0 TJÓNABÆTUR
5.1
Vinna vegna mála sem varða tjónabætur fer fram undir formerkjum Integrum samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem Lögmenn Suðurlandi ehf. setja fyrir Integrum.
6.0 BÚSKIPTI, GREIÐSLUSTÖÐVUN, NAUÐASAMNINGAR
6.1
Þóknun fyrir skiptastjórn, aðstoð við greiðslustöðvun eða umsjón með nauðasamningum er samkvæmt tímagjaldi í kafla 2.0.
Í búum, þar sem um verulegar eignir er að ræða, er heimilt að reikna 25% álag á tímagjald vegna vinnu við fyrstu aðgerðir.
6.2
Þóknun fyrir einkaskipti dánarbúa, skiptastjórn samkvæmt erfðaskrá, gæslu hagsmuna við búskipti í dánarbúum og við opinber skipti, félagsslit og fjárslit milli hjóna og sambúðarfólks er reiknuð af heildarfjárhæð nettó arfs- eða búshluta þess eða þeirra sem unnið er fyrir með eftirgreindum hætti:
87.500,- að viðbættum
8% af fyrstu kr. 720.000,- og
6% af næstu kr. 2,160.000,- og
3% af því sem umfram er.
Sé þóknun samkvæmt framangreindu lægri en samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
6.3
Þóknun fyrir innheimtu, sem tengist verkefnum samkvæmt kafla 6.0, er ákvörðuð samkvæmt kafla 4.0.
7.0 ÝMIS SKJALAGERÐ OG RÁÐGJÖF
7.1
Þóknun fyrir ýmsa skjalagerð og ráðgjöf er:
114.600,- fyrir stofnun félaga,
76.400,- fyrir gerð skuldabréfa og tryggingarbréfa að viðbættri fjárhæð sem nemur allt að 0,5% af allri fjárhæð bréfs,
38.200,- fyrir gerð veðleyfa, veðbandslausn, skuldbreytingar, umboð og ýmsar umsóknir,
38.200,- fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar,
76.400,- fyrir gerð erfðaskrár, kaupmála eða sambúðarsamnings,
114.600,- fyrir gerð skiptasamnings, þegar samningsaðilar, hjón eða sambúðarfólk, eru sammála um efni og gerð samningsins en ef ágreiningur er um búskipti er þóknun samkvæmt kafla 7,
114.600,-. fyrir eignaumsýslu og gerð samninga um skuldaskil.
Sé þóknun samkvæmt framangreindu lægri en samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
8.0 LEIGUSAMNINGAR
8.1
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um fasteign er:
76.400,- fyrir samning um einstakt íbúðarhúsnæði,
76.400,- fyrir gerð leigusamnings um einstakt atvinnuhúsnæði.
Sé þóknun samkvæmt framangreindu lægri en samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
8.2
Þóknun fyrir að annast milligöngu um að koma á leigusamningi um fasteign er:
1 mánaðar leiga hins leigða sé samningur gerður til skemmri tíma en 3 ára,
2 mánaða leiga sé samningur gerður til 3 og allt að 5 ára tíma,
3 mánaða leiga sé samningur gerður 5 ára eða lengri tíma.
Sé þóknun samkvæmt framangreindu lægri en samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
8.3
Þóknun fyrir gerð leigusamnings um lausafé skal vera grunngjald kr. 76.400,-. Sé sú þóknun lægri en samkvæmt tímaskráningu samkvæmt kafla 2.0 þá greiðist þóknun samkvæmt tímaskráningu.
9.0 KAUP OG SALA
9.1
Skoðun og verðmat
Þóknun fyrir skriflegt verðmat er unnið skv. tímagjaldi skv. kafla 2.0, auk aksturskostnaðar skv. kafla 17.0, en er að lágmarki:
35.000,- fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði 0-500 fermetrar,
50.000,- fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði 500-1000 fermetrar,
75.000,- fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði stærra en 1000 fermetrar,
35.000,- fyrir byggingalóðir,
40.000,- fyrir frístunda- og sumarhús ásamt lóðum eða landi,
80.000,- fyrir frístundajarðir með mannvirkjum og hlunnindum og landspildur,
130.000,- fyrir bújarðir með kvóta, mannvirkjum og hlunnindum.
9.2
Söluþóknun
A. Sala fasteigna og skipa
Þóknun fyrir skjalagerð og frágang við kaup eða sölu er reiknuð sem hlutfall af söluverði og er:
2,3% fyrir sölu fasteigna, þó ekki sumarhús, og skráðra skipa sem eru í almennri sölu,
1,9% fyrir sölu fasteigna, þó ekki sumarhús, og skráðra skipa sem eru í einkasölu,
3% fyrir sölu sumarhúsa sem eru í almennri sölu,
2,5% fyrir sölu sumarhúsa sem eru í einkasölu,
1% fyrir aðstoð við kaup fasteigna og skráðra skipa,
5% fyrir sölu félaga og atvinnufyrirtækja (reiknast af heildarsölu, þ.m.t. birgðum),
3%, en þó aldrei lægri en kr. 90.000,-, fyrir sölu bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna,
1,9% fyrir endursölu eignar sem áður hefur verið seld í makaskiptum.
Þóknun fyrir gerð einstaks kaupsamnings eða afsals er að lágmarki kr. 250.000,- og allt að 1% af kaupverði eftir umfangi verks.
Söluþóknun innifelur m.a. gerð kauptilboðs, kaupsamnings og afsals.
B. Makaskipti
Við makaskipti er þóknun samkvæmt því er fram kemur í A. lið greinar þessarar. Hafi önnur hvor eignin hvergi verið til sölu skal þóknun vera 1,9% af söluverði þeirrar eignar.
Hafi eign sem boðin er í makaskiptum verið í einkasölu hjá öðrum fasteignasala skal sá fasteignasali einn taka söluþóknun vegna þeirrar eignar samkvæmt söluumboði, enda áriti hann og ábyrgist eigin kaupsamning.
C. Eign utan söluskrár
Þóknun fyrir skjalagerð og frágang við eignaskipti þegar eign er utan söluskrár og kaup hafa átt sér stað utan fasteignasölunnar er:
1,9% af söluverði fasteignar,
1% af söluandvirði fasteignar og skráðs skips,
5% af söluverði lausafjár,
en þó aldrei lægri en kr. 250.000,-
10.0 ÝMIS ÁKVÆÐI
10.1
Álag á þóknun
Heimilt er að reikna allt að 50% álag á þóknun samkvæmt gjaldskránni ef verkefni krefst vinnu utan reglulegs vinnutíma eða á helgidögum, vinna fer fram í öðru landi, á erlendu tungumáli eða hraða þarf afgreiðslu sérstaklega. Einnig ef verulegir hagsmunir vinnast.
10.2
Greiðslur inn á þóknun og kostnað
Heimilt er að krefjast þess að viðskiptavinur greiði fyrirfram upp í þóknun og útlagðan kostnað.
Jafnframt er heimilt að krefjast þess að viðskiptavinur greiði kostnað þegar til hans er stofnað og upp í þóknun, eftir því sem verki miðar áfram.
10.3
Útlagður kostnaður
Viðskiptavinur greiðir allan útlagðan kostnað vegna máls, þ.m.t. kostnað við akstur og ferðalög, þ. á m. dagpeninga.
Heimilt er að reikna kostnað við akstur og ferðir með hliðsjón af reglum Fjármálaráðuneytisins um aksturskostnað og dagpeninga.
Heimilt er að leggja allt að 10% álag ofan á fjárhæð útlagðs kostnaðar sem lagt hefur verið út fyrir vegna máls.
Heimilt er að gjaldfæra vegna uppflettinga sem hér segir:
Veðbókarvottorð kr. 2.100,-
Vanskilaskrá kr. 1.850,-
Hlutafélagaskrá kr. 1.850,-
Eignakönnun kr. 5.700,-
Skönnuð skjöl kr. 1.100,-
Uppfletting í FMR kr. 750,-
Áreiðanleikakönnun kr. 5.000,-
10.4
Kostnaður innifalinn í þóknun
Ýmis kostnaður sem fellur til á skrifstofunni og erfitt er að sérgreina, svo sem ljósritun, ýmis aðföng o.fl., er að öllu jafnaði innifalinn í þóknun samkvæmt gjaldskrá þessari.
Heimilt er þó að gjaldfæra umfangsmikla notkun síma, ljósritunarvélar eða annara skrifstofutækja í þágu viðskiptamanns. Sama á við um póstburðargjöld, sér í lagi vegna ábyrgðarsendinga, og annað slíkt.
Heimilt er að gjaldfæra kr. 250,- fyrir hverja ljósritaða blaðsíðu, þetta gjald breytist í samræmi við gjaldskrá sýslumannsembætta vegna ljósritunar. Sama gjald er heimilt að gjaldfæra vegna afritunar og afhendingar gagna með rafrænum hætti fyrir hvert skjal.
10.5
Gildistaka og endurskoðun
Gjaldskrá þessi tekur gildi 1. júlí 2025.
Áskilinn er réttur til þess að endurskoða gjaldskrána reglulega, með hliðsjón af almennri verðlagsþróun. Þóknun fyrir unnið verk er miðuð við gjaldskrá í gildi við útgáfu reiknings.
