Bleikjulækur 37, Selfoss
Til baka
- Lýsing
-
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Bleikjulækur 37, Selfossi. Einkasala
Um er að ræða 85 fm. snyrtilegt raðhús sem byggt var árið 2016. Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu bárujárni og bárujárn er einnig á þaki. Að innan er húsið þrjú svefnherbergi þar af tvö með fataskápum, stofa, eldhús, þvottahús og forstofa. Harðparket er á gólfum í herbergjum, stofu og eldhúsi en flísar eru á forstofu, þvottahúsi og baði. Í eldhúsi er hvít innrétting. Innfelld tæki eru í eldhúsi. Á baðinu er hvít innrétting með vaski, walk-in sturta, handklæðaofn og upphengt wc.
Útgengt er úr stofu á ca 45 fm verönd.Nánari upplýsingar veita
Árni Hilmar Birgisson, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 856-2300, arni@log.is
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 862 1996, steindor@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasala - Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is
- Lánmöguleikar