Útey 2, Laugarvatn
Til baka
- Lýsing
-
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Útey 2 lóð, Bláskógabyggð
Um er að ræða 48,7 fm sumarbústað á 5.440 fm á fallegri leigulóð í
skipulögðu sumarbústaðahverfi. Séð er út á vatnið og heim að
skólahúsunum á Laugarvatni. Gott útsýni m.a. að Heklu. Húsið klætt með rásuðum
krossvið, byggt árið 1989. Ágæt verönd úr timbri er hringinn í kring um
allt húsið og stigar niður á tvo vegu. Á þaki er trapisujárn.
Vindskeiðar endurnýjaðar í maí sl. Húsið stendur á tjörguðum
timburstaurum. Að innan er húsið panilklætt og nýtt harðviðarparket er
á gólfum. Ný eldhúsinnrétting (neðri skápar) með nýju helluborði með
fjórum hellum. Þrjú herbergi eru í húsinu en þar af er eitt fremur
lítið, geymsla við andyri og auk þess er svefnloft yfir stórum hluta
hússins. Timburstigi er upp á loftið. Salerni er í húsinu. Ekki er
hitaveita á svæðinu og ekki heitt neysluvatn. Húsið er upphitað með
rafmagnsþilofnum. Sumarhúsafélag er á svæðinu. Lóðarleigusamningur var endurnýjaður 2016 til 30 ára.
Eignin er laus strax og verður sýnd eftir samkomulagi.Nánari upplýsingar veita
Árni Hilmar Birgisson, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 856-2300, arni@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali í síma 845-9900, halli@log.is
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 862 1996, steindor@log.is
- Lánmöguleikar